Æsku-Emil
Hann Emil okkar er dáinn, hann dó 27. mars 2006.
Það ríkir mikil sorg á heimilinu.
Þrátt fyrir yndislega Husky hunda þá kemur enginn í staðinn fyrir hann.
Hann fylgdi okkur hvert fótmál alla tíð og hann fagnaði manni alltaf eins og hann hefði ekki séð mann í margar vikur.
Við vissum svo sem að hann yrði ekki langlífur, en samt......
Emil var ekki hluti af Múlaræktun en var samt prinsinn á bænum. Hann var Enskur Springel Spaniel og kom til okkar 4 mánaða. Hann var fæddur 29. október 1999.
Hann var fyrsti hundurinn okkar. Honum fannst alltaf afar gaman að sýna og skemmti sér vel á sýningum.
Hann vann til fjölda verðlauna, var Íslenskur meistari og hefur hlotið tvö alþjóðleg meistarastig.
Eftir að hann varð meistari vorum við beðinn um hann í ræktun og fór hann þá í myndatöku.
Það kom í ljós að hann var með verulegan mjaðmagalla og þar með var sá draumur búinn.
Emil hafði mjög gaman af gönguferðum og fylgdi frúnni á bænum í margar göngur alveg síðan hann var lítill hvolpur.
Á sunnudögum var alltaf farið í góðar gönguferðir og það er eins og Emil vissi alltaf þegar sunnudagurinn rann upp.
Þá vék hann ekki frá frúnni og leit ekki við húsbóndanum.
Múlaræktun, Gunnlaugsstaðir á Völlum, Egilsstaðir, Símar: 557-7241 og 899-5241 Tölvupóstur hjordis@regula.is