Um Múlaræktun
Múlaræktun er staðsett á Gunnlaugsstöðum á Völlum 18 km frá Egilsstöðum.
Á Gunnlaugsstöðum búa Steindór V. Sigurjónsson og Hjördís Hilmarsdóttir og eru hundar aðaláhugamálið á bænum.
Nú í byrjun árs 2006 erum við að fjölga hundunum okkar um helming. Við það verður mikil breyting hjá okkur. Við erum t.d. búin að innrétta kjallarann fyrir hundana og svo urðum við að fá okkur stærri bíl.
Ræktunarmarkmið Múlaræktunar
Við stefnum á að rækta aðeins fyrsta flokks Siberian Husky hunda.
Við munum aðeins nota 1. einkunnar hunda í ræktunina og leggja áherslu á góða skapgerð og falllega líkamsbyggingu.
Múlaræktun, Gunnlaugsstaðir á Völlum, Egilsstaðir, Símar: 557-7241 og 899-5241 Tölvupóstur hjordis@regula.is